Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 21. maí 2019 21:55
Arnar Helgi Magnússon
Hólmfríður: Alfreð var alveg brjálaður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmfríður Magnúsdóttir var hetja Selfyssinga þegar hún skoraði sigurmark liðsins gegn Keflavík í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld.

Hólmfríður kom inná sem varamaður þegar 25 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Lestu um leikinn: Selfoss 3 -  2 Keflavík

„Hann sagði mér bara að koma sterk inn, sem og ég gerði. Við mættum eiginlega ekki til leiks í fyrri hálfleik og á sama tíma voru Keflvík mjög sterkar. Það var bara eins gott að við komum brjálaðar út í síðari hálfleik og náðum að klára þetta," sagði Hólmfríður eftir leik.

„Mér fannst þær mjög góðar í fyrri hálfleik en við vorum betri í seinni hálfleik. Ég er mjög sátt við stigin þrjú."

Hólmfríður segir að Alfreð, þjálfari Selfyssinga, hafi ekki verið neitt sérstaklega sáttur í hálfleiksræðunni enda Selfyssingar gjörsamlega á hælunum.

„Ég skrapp aðeins á klósettið í hálfleik og ég þorði eiginlega ekki að kíkja inn í hinn klefann. Alfreð var alveg brjálaður, og þær áttu það alveg skilið. Þær mættu ekki til leiks eins og þær áttu að gera."

Eitthvað er í það að Hólmfríður geti farið að byrja leiki.

„Ég er bara á fjórðu viku undirbúningstímabilsins en ég er búinn að vera að auka álagið jafnt og þétt í hverri viku. Líkaminn er að taka vel í það."

Viðtalið við Hólmfríði má sjá hér í spilaranum að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner