Lið Chelsea varð að gista aukanótt í Grikklandi eftir leik liðsins gegn PAOK í Evrópudeildinni í gærkvöldi.
Leikmenn Chelsea áttu að fljúga heim til Englands í gærkvöldi en aflýsa varð fluginu vegna veðurs.
Leikmennirnir koma því með flugi aftur til London um miðjan dag í dag í staðinn.
Leikmenn Chelsea áttu að fljúga heim til Englands í gærkvöldi en aflýsa varð fluginu vegna veðurs.
Leikmennirnir koma því með flugi aftur til London um miðjan dag í dag í staðinn.
Chelsea hafði betur 1-0 gegn PAOK í gær en Willian skoraði eina markið snemma leiks.
Næsti leikur Chelsea er á sunnudaginn en liðið leikur þá við West Ham í Lundúnarslag.
Athugasemdir