Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
   lau 25. apríl 2026 00:10
Helgi Inguson
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Lengjudeildin
Stefán Þór skoraði tvö og lagði upp tvö.
Stefán Þór skoraði tvö og lagði upp tvö.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég man ekki hvenær ég spilaði síðast þegar það var ellefu marka leikur," sagði Stefán Þór Pálsson við Fótbolta.net eftir leik ÍR og Aftureldingar.

Lestu um leikinn: Afturelding 4 -  7 ÍR

„Einhvern veginn alltaf þegar við fjarlægjumst þá og komumst nokkrum mörkum yfir þá minnkuðu þeir alltaf muninn. En djöfull er þetta gaman og djöfull er gott að hafa klárað þetta og unnið þetta," sagði Stefán.

Stefán skoraði tvö mörk og lagði upp tvö að auki. Þegar hann var spurður hvort hann væri ekki ánægður með eigin frammistöðu hafði hann þetta að segja:

„Jújú, 100%. Það skiptir mestu máli að við unnum leikinn. Þrjú stig í pokann er bara virkilega dýrmætt í fyrsta leik og hvað þá á útivelli gegn Aftureldingu."

„Markmiðið út sumarið er að vinna næsta leik, sama hvaða leikur það er. Við eigum að geta unnið öll liðin sem eru í þessari deild," bætti Stefán við að lokum aðspurður úm markmið tímabilsins.
Slapp
banner
banner