Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. janúar 2023 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Palace leggur fram tilboð í framherja Bristol City
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Crystal Palace hefur lagt fram 12 milljóna punda tilboð í Antoine Semenyo, framherja Bristol City. Þetta kemur fram á staðarmiðlinum Bristol Live.

Semenyo er 23 ára gamall en hann er uppalinn hjá Bristol City og búið alla sína tíð á Englandi.

Hann á rætur sínar að rekja til Gana og ákvað því að spila fyrir landsliðið en hann fór með liðinu á HM í Katar á síðasta ári.

Crystal Palace hefur nú lagt fram 12 milljóna punda tilboð í Semenyo en félagið vill styrkja sóknarlínuna fyrir seinni hluta tímabilsins.

Bristol City er talið vilja meiri pening fyrir þennan ágæta leikmann en hann er í lykilhlutverki hjá B-deildarliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner