Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 26. febrúar 2021 05:55
Aksentije Milisic
Þýskaland um helgina - Toppliðin eiga heimaleiki
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Baráttan í þýska boltanum heldur áfram um helgina og fyrsti leikur umferðarinnar fer fram í kvöld þegar Werder Bremen og Eintracht Frankfurt mætast. Frankfurt er í mikillri baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.

Dortmund mætir Arminia Bielefeld á laugardaginn og þá færð topplið deildarinnar, Bayern Munchen, lið Köln í heimsókn. Klukkan 17:30 mætir RB Leipzig liði Mönchengladbach á heimavelli. Leipzig eltir Bayern eins og skugginn.

Síðasti leikur helgarinnar er barátta Bayer Leverkusen og Freiburg. Leverkusen verður að vinna leikinn svo liðið missi ekki Frankfurt of langt fram úr sér.

Alla leiki helgarinnar má sjá hér fyrir neðan.

GERMANY: Föstudagur
19:30 Werder - Eintracht Frankfurt

GERMANY: Laugardagur
14:30 Wolfsburg - Hertha
14:30 Bayern - Köln
14:30 Dortmund - Arminia Bielefeld
14:30 Stuttgart - Schalke 04
17:30 RB Leipzig - Gladbach

GERMANY: Sunnudagur
12:30 Union Berlin - Hoffenheim
14:30 Mainz - Augsburg
17:00 Leverkusen - Freiburg

Athugasemdir
banner