„Það er ótrúlega öflugur gæi að koma inn, bæði stórt nafn og virkar drífandi og metnaðarfullur persónuleiki. Ég held og vona að hann eigi eftir að vera góð lyftistöng fyrir hópinn. Hann mætti til okkar í dag, var með okkur í kringum æfinguna og virkar bara vel á mig. Ég held hann sé bara toppmaður. Það er alltaf gott að fá svona gæja inn, oftar en ekki lyftast allir upp. Ef hann nær að hjálpa til við að lyfta öllum á næsta plan, þá er það bara æðislegt," segir Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, við Fótbolta.net í dag.
Hann var spurður út í komu Steven Caulker til félagsins. Þessi fyrrum leikmaður Tottenham og Liverpool fær leikheimild eftir þrjár vikur en er strax kominn inn í þjálfarateymið.
Hann var spurður út í komu Steven Caulker til félagsins. Þessi fyrrum leikmaður Tottenham og Liverpool fær leikheimild eftir þrjár vikur en er strax kominn inn í þjálfarateymið.
„Það er gott fyrir okkur að fá meiri reynslu af stærsta sviðinu inn í hópinn okkar, við höfum verið með ungt lið í gegnum tíðina, menn vissulega orðnir reynslumeiri núna, en þetta er gæi sem þekkir fótboltann, góðu og slæmu hliðarnar, helvíti vel. Hann er fullkominn kandídat til þess að miðla reynslu sinni, sem er frábært fyrir okkur," segir Gummi.
Ég geri ráð fyrir því að flestir í hópnum hafi séð Caulker spila í sjónvarpinu, er skrítið að fá hann inn?
„Sennilega aðeins meira fyrir okkur eldri gæjana, yngri gæjarnir eru mögulega einhverjir aðeins of ungir til þess að hafa séð hann spila í úrvalsdeildinni. Það er geggjað að fá inn mann sem maður hefur horft á í sjónvarpinu, ég man eftir honum úr úrvalsdeildinni. Maður sér góða físík; stór og stæðilegur gaur og góð nærvera, reikna með að það sé ekkert alltof skemmtilegt að spila á móti honum."
„Það er gaman að fá svona stórt nafn í deildina, líka fyrir hin liðin. Deildin fær aukið umtal þegar það koma stærri nöfn, það er bara gaman fyrir alla. Vonandi gengur þetta vel."
„Gylfi kom heim fyrir 2024, það var mikið umtal, Gylfi er stór prófíll og Caulker stór prófíll líka. Þegar það koma gæjar inn sem hafa spilað í ensku úrvalsdeildina, þá er það stórt fyrir okkar litlu deild. Það verður gaman að sjá hvernig hann kemur inn. Það er gaman þegar umtalið er meira og meiri stemning í kringum þetta. Að fá inn stóra prófíla er klárlega einn liður í því. Vonandi verður þetta lyftistöng fyrir deildina í heild sinni líka."
Talandi um Gylfa Þór Sigurðsson, hann og Caulker spiluðu saman samanlagt 40 leiki með Tottenham og Swansea 2012-2013.
Liðið hjá Stjörnunni virðist vera fastmótaðra núna heldur en í byrjun móts, færri breytingar á liðinu milli leikja. Við það að fá inn svona stórt nafn, fara ekki menn meira upp á tærnar, halda áfram að sýna sig til að halda sætinu?
„Jú, algjörlega. Það er þannig í íþróttum almennt og lífinu að samkeppni drífur frammistöðu og árangur. Með honum erum við að fá inn aukna samkeppni og gæja sem mun pressa á okkur hina sem er bara frábært. Þú átt aldrei að geta gengið að því sem vísu að eiga öruggt sæti í liðinu. Auðvitað er búið að ganga vel núna, en með því að fá inn aðra týpu þá vonandi lyftum við okkur allir á næsta plan. Við getum ennþá betur og viljum ekki vera of þægilegir og fastir í okkar. Þetta er sennilega liður í að hjálpa okkur við að halda uppi og lyfta 'standardinum' hjá okkur," segir Gummi.
Athugasemdir