Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 26. nóvember 2022 19:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lewandowski grét gleðitárum - „Draumur orðinn að veruleika"
Mynd: EPA

Robert Lewandowski framherji pólska landsliðsins skoraði sitt fyrsta mark á HM í dag þegar liðið lagði Sádí Arabíu í dag. Hann gulltryggði 2-0 sigur.


Þetta var tilfinningaþrungin stund en hann grét af gleði þegar hann skoraði.

„Mér hefur alltaf langað til að skora á HM svo þetta er draumur sem er orðinn að veruleika. Ég var svo tilfinningaríkur, ég staðfesti það að það komu gleðitár. Sem fyrirliði Póllands er ég ánægður fyrir hönd liðsins," sagði Lewandowski.

Lokaleikur Póllands í riðlakeppninni verður gegn Argentínu á miðvikudaginn og spurning hvort hann haldi uppteknum hætti.


Athugasemdir
banner