Fimm stór félög að eltast við Semenyo - Man Utd í viðræðum um nítján ára miðjumann - Arsenal hefur áhuga á leikmanni AC Milan
banner
   mið 17. desember 2025 12:51
Elvar Geir Magnússon
Orri aftur til æfinga með Real Sociedad - Spilaði síðast fyrir 109 dögum
Orri fagnar marki gegn Espanyol í ágúst.
Orri fagnar marki gegn Espanyol í ágúst.
Mynd: EPA
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson mun æfa með Real Sociedad á morgun en frá þessu er greint í spænskum fjölmiðlum. Orri spilaði síðast með liðinu fyrir 109 dögum.

Hann spilaði fyrstu þrjár umferðirnar í La Liga áður en hann meiddist. Hann var ekkert með íslenska landsliðinu í undankeppni HM. og var saknað.

Þessi 21 árs sóknarmaður hefur verið meiddur á læri en nú styttist í að hann geti látið til sín taka á vellinum að nýju.

Real Sociedad er í fimmtánda sæti La Liga, aðeins einu stigi fyrir ofan fallsæti. Þjálfarinn var látinn taka pokann sinn á dögunum og Ion Ansotegi stýrir liðinu til bráðabirgða.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 17 14 1 2 49 20 +29 43
2 Real Madrid 17 12 3 2 34 16 +18 39
3 Villarreal 15 11 2 2 31 13 +18 35
4 Atletico Madrid 17 10 4 3 30 16 +14 34
5 Espanyol 16 9 3 4 20 16 +4 30
6 Betis 16 6 7 3 25 19 +6 25
7 Athletic 17 7 2 8 15 22 -7 23
8 Celta 16 5 7 4 20 19 +1 22
9 Sevilla 16 6 2 8 24 24 0 20
10 Getafe 16 6 2 8 13 18 -5 20
11 Elche 16 4 7 5 19 20 -1 19
12 Alaves 16 5 3 8 14 17 -3 18
13 Vallecano 16 4 6 6 13 16 -3 18
14 Mallorca 16 4 5 7 18 23 -5 17
15 Real Sociedad 16 4 4 8 20 24 -4 16
16 Osasuna 16 4 3 9 14 20 -6 15
17 Valencia 16 3 6 7 15 25 -10 15
18 Girona 16 3 6 7 15 30 -15 15
19 Oviedo 16 2 4 10 7 26 -19 10
20 Levante 15 2 3 10 16 28 -12 9
Athugasemdir
banner
banner
banner