Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Líkleg byrjunarlið í grannaslagnum - Tveir fjarverandi og tveir fúlir
Kristinn Steindórsson kemur að öllum líkindum inn í lið Breiðabliks.
Kristinn Steindórsson kemur að öllum líkindum inn í lið Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrirliðinn í hægri bakverði?
Fyrirliðinn í hægri bakverði?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Atlason snýr aftur í liðið.
Emil Atlason snýr aftur í liðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron klár í að spila?
Aron klár í að spila?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Blikar án þessara tveggja í kvöld.
Blikar án þessara tveggja í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Klukkan 19:15 flautar Sigurður Hjörtur Þrastarson og leikur Stjörnunnar og Breiðabliks hefst á Samsungvellinum í Garðabæ.

Stjarnan getur með sigri komist upp fyrir granna sína í töflunni en með sigri getur Breiðablik jafnað topplið Víkings að stigum.

Fótbolti.net hefur sett saman líkleg byrjunarlið fyrir leikinn.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  0 Breiðablik

Fljótt á litið eru einungis spurningarmerki í varnarlínunni og á miðsvæðinu hjá Jökli. Að okkar mati eru níu leikmenn sem gera sterkt tilkall í þær sjö stöður og verða því tveir fúlir á bekknum. Ekki er ólíklegt að þeir tveir byrji svo undanúrslitaleikinn gegn Val í bikarnum á þriðjudaginn.

Við spáum því að það verði þeir Kjartan Már Kjartansson og Þorri Mar Þórisson sem þurfi að gera sér það að góðu að byrja á bekknum. Emil Atlason hvíldi í síðasta leik og mun hann að öllum líkindum snúa aftur í liðið.

Það verður svo spennandi að fylgjast með því hvort að Steven Caulker verði á skýrslu sem aðstoðarþjálfari, en varð formlega leikmaður og aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í gær.

Hjá gestunum eru tvær stórar stærðir í leikbanni. Fyrirliðinn, Höskuldur Gunnlaugsson, og markahæsti leikmaðurinn Tobias Thomsen. Leikbönnin og meiðsli leikmanna gera liðsvalið að púsluspili, allavega utan frá séð, fyrir Dóra þjálfara.

Við spáum því að Kristinn Steindórsson taki stöðu Höskuldar í liðinu. Eins og Jökull sagði í viðtali í gær eru nokkrir sem geta tekið stöðu Thomsen, en við teljum að líklegasta lendingin verði að Óli Valur Ómarsson fari í stöðu fremsta manns, eins og hann leysti svo vel í vetur.

Dóri er með þrjá leikmenn tæpa fyrir leikinn eins og hann sagði í viðtali í gær. Ef Ásgeir Helgi getur spilað væri hægt að færa Anton Loga upp á miðsvæðið og annað hvort Viktor Karl eða Kristin í fremstu línu, ef Kristófer Ingi getur spilað mun hann væntanlega vera fremsti maður. Við spáum því að það verði reynt á að Aron Bjarnason spili þennan leik og verði úti hægra megin.

Athugasemdir