Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Noel Gallagher: Arsenal er ennþá rusl og Arteta verður rekinn fyrir jól
Noel Gallagher
Noel Gallagher
Mynd: Off The Post
Mikel Arteta.
Mikel Arteta.
Mynd: EPA
Noel Gallagher í hljómsveitinn Oasis er annálaður stuðningsmaður Manchester City. Hann ræddi við talkSPORT í morgun um City og baráttuna um enska titilinn.

City hefur verið duglegt að fá inn nýja leikmenn síðustu mánuði, í sumar hafa þeir Rayan Cherki, Tijjani Reijnders og Rayan Ait-Nouri skrifað undir.

„Allir nýju leikmennirnir líta vel út. Ef við tökum leikinn gegn Juventus sérstaklega fyrir þá lítur Ait-Nouri vel út, Cherki kom vel inn á, Reijnders lítur vel út, sem er mjög gott."

<>„Þetta er spennandi fyrir okkur City stuðningsmenn því liðið var komið á endastöð. Það var sorglegt að sjá Kev (De Bruyne) og Kyle (Walker) fara og Jack (Grealish) verður örugglega sendur út um dyrnar fljótlega - menn sem unnu þrennuna."

„Núna eru nýir leikmenn og ný stemning."

Varðandi samkeppnina hafði Gallagher þetta að segja: „Ég myndi segja að Liverpool sé líklegast aftur. Ég er með marga Liverpool stuðningsmenn í mínu starfsteymi og í hljómsveitinni, þeir munu óttast okkur, en ég er ekki viss um að við séum með nóg til að vinna á þessu tímabili. Kannki næsta tímabli."

„Ég bara vona að þetta tímabil verði meira spennandi en síðasta tímabil þegar titilbaráttan var búin í febrúar."

„En þú vsit, Arsenal - ennþá rusl. Það er allt sem skiptir máli. Þeir eru eins og Man United suðursins og ég er að elska það. Arteta verður farinn fyrir jól, það er svo ekki þess virði að ræða Manchester United. Þetta verður skemmtilegt tímabil,"
sagði Gallagher.
Athugasemdir