Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 16:00
Elvar Geir Magnússon
Lið í sjöttu efstu deild vill ráða Rooney
Wayne Rooney.
Wayne Rooney.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Wayne Rooney, fyrrverandi framherji Manchester United, er sagður vera á blaði hjá Macclesfield sem leikur í sjöttu efstu deild Englands.

Macclesfield er í stjóraleit og Rooney er án starfs síðan hann var látinn fara frá Plymouth Argyle í janúar.

Macclesfield fór upp um deild undir stjórn Robbie Savage en hann er að taka við Forest Green Rovers í D-deildinni.

Samkvæmt fréttum eru forráðamenn Macclesfield áhugasamir um Rooney, þrátt fyrir að hann hafi sjálfur gefið til kynna að hann sé ekki að leita að stjórastarfi sem stendur.

„Það sem ég er að gera núna er að vinna sem sérfræðingur í sjónvarpsútsendingu og ég er ánægður með það,“ sagði Rooney nýlega.
Athugasemdir
banner