Framhaldsaðalfundur knattspyrnudeildar Tindastóls fór fram 25. júní síðastliðinn. Efni fundarins var aðeins eitt, að kjósa formann og stjórn fyrir knattspyrnudeildina.
Jóhann Daði Gíslason gaf kost á sér til formanns knattspyrnudeildar Tindastóls og hlaut einróma kosningu.
Jóhann Daði Gíslason gaf kost á sér til formanns knattspyrnudeildar Tindastóls og hlaut einróma kosningu.
Jóhann Daði er fæddur árið 2000 og er leikmaður meistaraflokks karla hjá Tindstól frá árinu 2017, og hefur komið að styrkjaöflun fyrir knattspyrnudeildina. Þá lék hann í yngri flokkum félagsins. Hann á að baki nám í viðburðastjórnun og hefur nokkra reynslu sem slíkur.
Því var velt upp á dögunum hvort Tindastóll yrði með lið á næsta ári þar sem knattspyrnudeildin var í raun stjórnlaus. Enginn gaf kost á sér sem formaður knattspyrnudeildar á aðalfundi félagsins, en Jóhann Daði bauð sig núna fram og tekur við keflinu.
Með hans fyrstu verkefnum verður vonandi að aðstoða kvennaliðið betur. Það hefur verið margt ábótarvant í kringum liðið sem er í Bestu deildinni. Íslenskur kjarni liðsins er mestallur samningslaus og þá var það gagnrýnt af öðrum þjálfara í efstu deild hversu gamla bolta liðið væri að æfa og hita upp með.
Athugasemdir