Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fös 30. maí 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin um helgina - PSG og Inter mætast í úrslitaleiknum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það ríkir gríðarlega mikil eftirvænting fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu sem fer fram annað kvöld, þegar Paris Saint-Germain spilar við Inter.

Frakklandsmeistarar PSG sýndu mikil gæði til að leggja úrvalsdeildarfélögin Liverpool, Aston Villa og Arsenal að velli á leið sinni í úrslitaleikinn.

Luis Enrique er með magnaðan leikmannahóp sem gæti þó lent í erfiðleikum gegn gífurlega sterku liði Inter.

Inter fór í gegnum Feyenoord, FC Bayern og Barcelona á leið sinni í úrslitaleikinn og voru leikirnir gegn Barcelona einstaklega skemmtilegir.

Lærisveinar Simone Inzaghi munu mæta hungraðir til leiks eftir að hafa tapað úrslitaleiknum fyrir tveimur árum.

Það eru hins vegar liðin fimm ár síðan PSG tapaði úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

PSG hefur aldrei unnið keppnina en Inter vann síðast 2010.

Úrslitaleikurinn fer fram á Allianz Arena í München.

Laugardagur
19:00 PSG - Inter
Athugasemdir
banner