Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fös 30. maí 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin í dag - Ísland heimsækir Noreg
Icelandair
EM KVK 2025
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er nóg um að vera í Þjóðadeild kvenna í dag þar sem Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu eiga gríðarlega erfiðan útileik gegn frænkum okkar í Noregi.

Ísland, Noregur og Sviss eru að berjast um annað sæti riðilsins og geta Stelpurnar okkar átt góða möguleika á öðru sætinu með sigri í kvöld.

Norska liðið er þó ógnarsterkt og því verður um gríðarlega spennandi slag að ræða.

Frakkland er búið að sigra riðilinn þó að tvær umferðir séu enn eftir og spilar við botnlið Sviss í kvöld.

Það er gríðarlega mikið af áhugaverðum stórleikjum í dag þar sem Ítalía spilar meðal annars við Svíþjóð, Þýskaland mætir Hollandi, England tekur á móti Portúgal og Belgía fær Spán í heimsókn.

Það eru einnig leikir úr B- og C-deildum á dagskrá en leikmenn fá svo gott helgarfrí til að ferðast á milli landa og mæta aftur ferskir til leiks á þriðjudaginn. Ísland spilar þá heimaleik við topplið Frakklands.

A deild - Föstudagur
16:20 Ítalía - Svíþjóð
17:15 Danmörk - Wales
18:00 Noregur - Ísland
18:30 Belgía - Spánn
18:30 Þýskaland - Holland
18:35 Skotland - Austurríki
18:45 England - Portúgal
19:10 Frakkland - Sviss

B deild - Föstudagur
15:00 Tékkland - Króatía
15:00 Rúmenía - Bosnía
16:00 Slóvenía - Grikkland
17:00 Serbía - Ungverjaland
17:00 Tyrkland - Írland
17:00 Úkraína - Albanía
18:00 Belarús - Finnland
18:00 N-Írland - Pólland
Landslið kvenna - Þjóðadeildin
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Frakkland 5 5 0 0 12 - 2 +10 15
2.    Noregur 5 1 2 2 3 - 5 -2 5
3.    Ísland 5 0 4 1 6 - 7 -1 4
4.    Sviss 5 0 2 3 4 - 11 -7 2
Athugasemdir
banner
banner