Inter Miami hefur heiðrað Lionel Messi með því að nefna stúku í höfuðið á honum.
Það hefur ekki tíðkast að heiðra leikmann með þessum hætti á meðan hann er enn að spila fyrir félagið.
Í tilkynningu félagsins segir að með þessu sé verið að undirstrika að áhorfendur séu að upplifa eitthvað einstakt með því að sjá hann spila.

Messi gekk til liðs við Inter Miami árið 2023 og er þegar orðinn markahæsti leikmaður í sögu liðsins og er jafnframt sá stoðsendingahæsti.
Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem Messi fær stúku nefnda í höfuðið á sér en Newells Old Boys, uppeldisfélag Messi, gerði slíkt hið sama árið 2025.
Ásamt því var reist 20 metra há stytta af Messi í Kalkútta í Indlandi rétt fyrir jól.
Athugasemdir