Lærisveinar Heimis Hallgrímssonar í Írlandi töpuðu naumlega gegn Tékklandi í gær í undanúrslitaleik HM-umspilsins. Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem Tékkar höfðu betur.
Það verður seint sagt að írski blaðamaðurinn Eamon Dunphy sé mikill stuðningsmaður Heimis en hann skrifaði harðorðann pistil í garð Heimis í gær.
Það verður seint sagt að írski blaðamaðurinn Eamon Dunphy sé mikill stuðningsmaður Heimis en hann skrifaði harðorðann pistil í garð Heimis í gær.
Pistillinn byrjar á þessum hressu nótum: „Írland glataði tveggja marka forystu gegn lélegu liði Tékklands í gær. Ábyrgðin liggur hjá stjóranum. Hann verður að fara.“
Í pistli sínum segir Dunphy að Írland hafi aldrei náð tökum á leiknum, þó svo að Tékkar höfðu verið slakir.
„Liðið leit út eins og það væri að bíða eftir að eitthvað gerðist í stað þess að láta það gerast. Þetta er einkenni illa þjálfaðs liðs. Haltu þig á tannlæknastofunni Heimir“
„Þegar þú klúðrar 2-0 forystu, hleypir slökum andstæðingi aftur inn í leikinn og sýnir engan sveigjanleika, leikstjórn eða getu til að halda jafnvægi, þá er það ekki óheppni að tapa í vítaspyrnukeppni. Það er á ábyrgð stjórans,“ kom meðal annars fram í pistlinum.
Smelltu hér til að lesa pistilinn í heild sinni.
Athugasemdir


