,,Við erum ánægðir með að vera komnir áfram og að vera í pottinum þegar það verður dregið," sagði Atli Viðar Björnsson framherji FH sem skoraði tvö mörk í 3-2 sigri á Keflavík í 32 liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
,,Mér fannst leikurinn ekkert sérstakur, sérstaklega ekki fyrri hálfleikurin. Við vorum hægir og ekki sjálfum okkur líkir. Svo fórum við yfir nokkur atriði í hálfleik, ýmislegt sem við vildum gæti og það tókst ágætlega."
FH verður því í pottinum þegar dregið verður í 16 liða úrslitin.
,,Ég veit að félagar mínir verða ekkert ánægðir með mig þegar ég segi þetta en mig langar að fara til Grenivíkur," sagði Atli Viðar.
,,Mig langar að fá Magna, ég á marga góða vini þar og langar að heilsa upp á þá. Annars vil ég fá heimaleik."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.























