Það er athyglisverður leikur í þýska boltanum í kvöld.
Bayern mætir Borussia Dortmund í leiknum um Ofurbikar Þýskalands. Það er alltaf athyglisvert þegar þessi tvö lið mætast.
Bæði töpuðu þau leikjum sínum í þýsku úrvalsdeildinni um síðustu helgi og mæta eflaust dýrvitlaus í leikinn í kvöld.
Jadon Sancho verður ekki með Dortmund í kvöld vegna veikinda og hjá Bayern mun vanta Leroy Sane vegna hnémeiðsla. Þetta ætti samt sem áður að vera góð skemmtun.
Leikur dagsins:
19:30 Bayern - Dortmund (Viaplay)
Athugasemdir