Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
   fös 29. júní 2012 21:42
Brynjar Ingi Erluson
Maggi Gylfa: Það var mikilvægt að klára þennan leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það er ekki alltaf hægt að skora á fyrstu mínútu, en það var bara þolinmæði og mér fannst við svona hægt og sígandi ná betri tökum á leiknum og allan seinni hálfleikinn fannst mér við líklegri til að skora og svo kom það, sem var bara gott," sagði Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV eftir sigur liðsins á Val í kvöld.

Ian Jeffs og Tonny Mawejje skoruðu mörk ÍBV sem vann Val með tveimur mörkum gegn engu í Pepsi-deild karla.

,,VIð vorum alls ekki á tánum í fyrri hálfleik. Auðvitað blautur völlur í fyrsta skiptið í allt sumar og þungur og við svolítið hægir í gang. Þeir spiluðu svolítið öðruvísi en við bjuggumst við, þeir spiluðu 4-4-2 og við vorum einum færri á miðjunni og réðum illa við það, en svo breyttum við aðeins í hálfleik og mér fannst við mjög góðir í seinni hálfleik."

,,Auðvitað erum við í skýjunum og þetta er frábært, en ég meina næst er Evrópuleikur úti í Írlandi og við þurfum bara að fara að hugsa út í það núna. Mér fannst mikivægt að klára þennan leik þar sem við verðum ekki með í næstu umferð, þannig það var mikilvægt að vinna þennan leik, þetta var lykilleikur."

,,Við ætlum okkur að reyna að vera í toppbaráttunni. Það hafa oft verið hálf miskilinn mín orð, við ætlum okkur ekki að gera verra en í fyrra og við ætlum að reyna að berjast um Evrópusæti og vonandi tekst það, við erum alla vega að nálgast þá baráttu alla vega,"
sagði hann að lokum.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner