,,Þetta féll ekki alveg með okkur í dag og byrjaði herfilega," sagði Agnar Bragi Magnússon miðvörður Selfoss eftir 1-3 tap gegn Stjörnunni heima í kvöld.
Lestu um leikinn: Selfoss 1 - 3 Stjarnan
,,Við lentum manni undir eftir tíu mínútur og svo lenti Stefán Ragnar í erfiðum meiðslum. Samt sem áður náðum við að skora og setja á þá eitt mark en eftir það náðu þeir að setja á okkur tvö. við hefðum þurft að halda út hálfleikinn."
,,Það er alltaf erfitt á móti svona liði eins og Stjörnunni sem er að mínu mati eitt besta lið í þessari deild."
,,Skrokkurinn er á réttri leið, ég er búinn að keyra mikið á líkamanum síðan í haust þegar ég fór í aðgerð í fyrra. Ég þurfti að taka frí og er að koma ferskur inn núna."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
























