Keflavík er VISA-bikar meistari karla árið 2004 en liðið sigraði KA 3-0 í úrslitaleik á Laugardalsvelli núna rétt í þessu. Þórarinn Brynjar Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Keflvíkinga á elleftu og 26.mínútu og undir blálokin tryggði varamaðurinn Hörður Sveinsson svo verðskuldaðan sigur þeirra.
Við óskum Keflvíkingum að sjálfsögðu til hamingju með þetta en innan tíðar mun koma umfjöllun og myndur úr leiknum.



