Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mán 14. október 2019 21:39
Egill Sigfússon
Arnór Sigurðsson: Extra sætt að ná inn fyrsta markinu í sigri hér heima
Icelandair
Arnór að skora mark sitt í kvöld
Arnór að skora mark sitt í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Hún var geggjuð, náttúrulega extra sætt að ná því hér í sigri á Laugardalsvellinum. Þannig að það var mjög góð tilfinning."

Sagði Arnór Sigurðsson leikmaður Íslenska landsliðsins eftir að hafa skorað sitt fyrsta landsliðsmark í 2-0 sigri á Andorra á Laugardalsvelli í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  0 Andorra

Það var rok og rigning í kvöld og Arnór sagði að þeir voru dagóða stund í gang en þegar þeir fóru að dæla löngum boltum þá náðu þeir inn marki og góðum tökum á leiknum.

„Það kom meira rok þegar leið á leikinn, við vorum í smá brasi að komast í takt við leikinn en þegar við fórum að spila löngum boltum á Kolla og Alfreð þá fórum við að finna taktinn og náðum inn marki."

„Það sem skiptir mestu máli er að við náðum í þessi tvö stig, ég er auðvitað mjög sáttur við að ná inn marki og sigri. Ég er að koma inn í mína fyrstu landsleiki hérna svo ég verð bara að taka mín tækifæri og vera klár þegar kallið kemur."

Sagði Arnór aðspurður út í sitt hlutverk í landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner