Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 16. júní 2007 20:55
Magnús Már Einarsson
Hilmar Rafn gerði 4 mörk á 10 mínútum fyrir Hauka (Myndir)
Hilmar Rafn fagnar einu marka sinna.
Hilmar Rafn fagnar einu marka sinna.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Hilmar Rafn Emilsson framherji Hauka skoraði fjögur mörk á tíu mínútna kafla í 5-2 sigri liðsins á Hetti í annarri deild karla í dag. Þrjú fyrstu mörkin komu á sex mínútna kafla en mörkin komu á 35, 36, 40 og 44.mínútu.

,,Þetta er í fyrsta skiptið sem ég set fjögur í deildinni þannig að það er gaman af því. Ég hef sett fjögur í deildabikar og æfingaleikjum áður en ekki í deildinni," sagði Hilmar Rafn við Fótbolta.net í dag. Þriðja markið hans kom úr vítaspyrnu sem hann fékk að taka til að ná þrennunni.

,,Ég fékk bara að taka vítið til að ná þrennunni. Kristján Ómar (Björnsson) er vítaskyttan hjá okkur og hann leyfði mér að taka vítið en ég vil þakka Ásgeiri (Ingólfssyni) sérstaklega fyrir að hafa fiskað vítið, hann gerði þetta alveg frábærlega."

Hilmar skoraði mörkin undir lok fyrri hálfleiks skyldi hann hafa áttað sig strax á að mörkin komu með svona stuttu millibili?

,,Nei ég pældi ekki í því fyrr en í hálfleik. Ég leit á klukkuna þegar ég skoraði fyrsta markið og svo pældi ég ekkert í því fyrr en í hálfleik að þetta hefði komið á tíu mínútum. Þessi tíu mínútna kafli sökkti þeim. Það eru stigin þrjú sem skipta mestu máli en það er alltaf gaman að skora," sagði Hilmar Rafn sem hefur byrjað mótið
frábærlega og skorað níu mörk í fyrstu fimm leikjunum í
annarri deildinni.

Hér að neðan eru myndir af mörkunum sem Hilmar skoraði á Ásvöllum í dag en staðan var 1-1 áður en hann gerði mörkin fjögur.


2-1 (35.mínúta): Hilmar Rafn skorar með skoti eftir fyrirgjöf frá hægri kantinum.


3-1 (36.mínúta): Hilmar Rafn stingur varnarmenn Hattar af og skorar framhjá Óliver Bjarka Ingvarssyni í markinu.


4-1 (40.mínúta): Geir Arne Kaspersen brýtur á Ásgeir Ingólfssyni og vítaspyrna er dæmd. Hilmar Rafn fer á punktinn og skorar.


5-1 (44.mínúta): Hilmar Rafn kastar sér fram og skorar með skalla eftir aukaspyrnu frá vítateigshorni.


Slapp