PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
   mið 19. maí 2010 14:29
Hörður Snævar Jónsson
Ólafur Jó: Held að þetta hafi verið uppblásið með Eið Smára
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari valdi í leikmannahóp sinn fyrir vináttulandsleik við Andorra sem fram fer laugardaginn 29. maí á Laugardalsvelli.

,,Nú er það þeirra að sanna það fyrir mér, við eigum feiknarlega mikið af ungum og efnilegum leikmönnum og ég er með töluvert af þeim í mínum hóp fyrir þennan leik. Ég er bara spenntur fyrir því að sjá hvernig þeir bregðast við," sagði Ólafur um unga leikmenn liðsins við Fótbolta.net.

,,Jafnvel, að sjálfsögðu verður alltaf besta landsliðið valið en ég sé það alveg gerast að margir af þessum ungu leikmönnum fari að detta inn í hópinn hjá mér."

Athygli vakti að Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í nægilega góðu formi að mati Ólafs til að spila leikinn.

,,Hann er ekki í formi til að spila þennan landsleik,"sagði Ólafur en sögur voru á kreiki um að Eiður hefði verið á svamli á Íslandi þegar Íslands spilaði landsleik sem EIður gaf ekki kost á sér en Ólafur telur þær sögur ekki á rökum reistar.

,,Ég held að það hafi verið uppblásið, hann fékk frí á þeim forsendum að hann væri að æfa með Tottenham og hann mætti á allar þær æfingar sem hann átti að mæta á, þetta var blásið upp."
Slapp
banner
banner