PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
   lau 05. júní 2010 17:59
Einar Sigurðsson
Leifur Garðarsson: Ákvað að stríða mönnum og vera bleikur
Leifur með bendingar á hliðarlínunni í dag.
Leifur með bendingar á hliðarlínunni í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
,,Mér finnst eins og við eigum eitthvað inni en á móti kemur að við spiluðum oft fanta fótbolta hér í fyrra og fengum ekki stigin en við erum allavega að fá stig núna og erum ósigraðir á heimavelli, það er lykilatriði, þú verður að vinna heimaleikina þína," sagði Leifur Garðarsson þjálfari Víkings eftir 1-0 sigur á Njarðvík í dag.

,,Ef við spilum illa í allt sumar og vinnum leikina þá endar það vel. Þá er mér skítsama," hélt Leifur áfram.

Leifur skartaði fallegri bleikri skyrtu og peysu í sama lit í dag og hafði verið flottur í tauinu í síðasta leik gegn Sindra í bikarnum í vikunni. Hann var spurður út í það.

,,Það var skorað á mig að breyta aðeins til, sérstaklega því vinir mínir í Sindra komu í heimsókn. Það er mikið stórveldi og frábært félag. Svo hélt þetta áfram því menn voru að gera grín að nýja varabúningi Everton og sögðu að hann væri bleikur og ljóstur sem ég er algjörlega ósammála. Einhver fallegasti knattspyrnubúningur sem maður hefur séð síðari ár. Þannig að ég ákvað að stríða mönnum og vera bleikur í dag."
Slapp
banner
banner