Sancho, Lammens, Jackson, Lookman, Bissouma, Gomez, Ederson og fleiri góðir í slúðrinu á gluggadegi
   mán 01. september 2025 08:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Markvarðaskipti hjá Man City verða að veruleika
Gianluigi Donnarumma.
Gianluigi Donnarumma.
Mynd: EPA
Manchester City er að ganga frá kaupum á ítalska landsliðsmarkverðinum Gianluigi Donnarumma.

City er á sama tíma að selja brasilíska markvörðinn Ederson til Fenerbahce.

Fabrizio Romano segir frá þessu en þessi skipti hafa legið í loftinu síðustu daga og vikur.

Donnarumma var af einhverri ástæðu ekki í plönum Paris Saint-Germain eftir að hafa verið besti markvörður heims undanfarin misseri.

Donnarumma kemur til með að kosta um 40 milljónir evra á meðan Ederson fer til Tyrklands fyrir 14 milljónir evra.
Athugasemdir
banner