Ítalskir fjölmiðlar keppast við að greina frá því að kaupskyldan fyrir varnarmanninn Daniele Ghilardi virktist sjálfkrafa í síðasta mánuði.
Roma er því búið að ganga frá kaupum á leikmanninum fyrir um 11 milljónir evra í heildina.
Ghilardi kemur úr röðum Verona en stór hluti upphæðarinnar rennur í kassa uppeldisfélagsins Fiorentina sem var með endursöluákvæði.
Ghilardi er 23 ára gamall og hefur fest sig í sessi í sterku byrjunarliði Roma. Hann er með 43 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Ítalíu en hefur ekki fengið að spreyta sig fyrir A-landsliðið.
Athugasemdir



