Tveimur fyrstu leikjum dagsins er lokið í Serie A, efstu deild ítalska boltans.
Í fyrri leik dagsins tók Cagliari á móti Como í jöfnum slag þar sem Martin Baturina náði forystunni fyrir gestina eftir atgang í vítateignum. Lucas Da Cunha átti stoðsendinguna.
Sebastiano Esposito jafnaði með skalla af stuttu færi en það var Da Cunha sem réði úrslitum með draumamarki. Boltinn skoppaði skemmtilega fyrir Da Cunha sem ákvað að láta vaða af um 20 metra færi og átti markvörður Cagliari aldrei möguleika á að ná til boltans. Fallegur þrumufleygur sem endaði undir samskeytunum í fjærhorninu réði úrslitum.
Þetta var þriðji sigur Como í röð í deildinni og er liðið í harðri baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð. Cagliari er sex stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Atalanta fékk Udinese í heimsókn í seinni leik dagsins og komust gestirnir í tveggja marka forystu. Fyrst skoraði Thomas Kristensen með skalla eftir hornspyrnu undir lok fyrri hálfleiks áður en Keinan Davis tvöfaldaði forystuna í síðari hálfleik. Davis skoraði af stuttu en nokkuð erfiðu færi eftir að varnarmenn Atalanta höfðu hent sér fyrir marktilraunir liðsfélaga hans.
Heimamenn í Bergamó gerðu sóknarsinnaðar skiptingar sem skiluðu sér með tveimur mörkum með stuttu millibili frá Gianluca Scamacca, fyrrum leikmanni West Ham United. Hann gerði bæði mörkin með skalla, það fyrra eftir fyrirgjöf frá Nicola Zalewski og það seinna eftir marktilraun Nikola Krstovic sem var varin upp í loftið.
Lokakafli leiksins var opinn og skemmtilegur þar sem bæði lið komust í góðar stöður til að gera sigurmark, en nýttu ekki sóknirnar sínar. Lokatölur urðu því 2-2.
Atalanta er fimm stigum frá meistaradeildarsæti eftir jafnteflið á meðan Udinese siglir lygnan sjó um miðja deild.
Cagliari 1 - 2 Como
0-1 Martin Baturina ('14 )
1-1 Sebastiano Esposito ('56 )
1-2 Lucas Da Cunha ('76 )
Atalanta 2 - 2 Udinese
0-1 Thomas Kristensen ('40 )
0-2 Keinan Davis ('55 )
1-2 Gianluca Scamacca ('75 )
2-2 Gianluca Scamacca ('79 )
Athugasemdir


