KA og Grindavík áttust við í Boganum og úr varð jafn og bragðdaufur slagur.
Birgir Baldvinsson var með fyrirliðabandið hjá KA en fór meiddur af velli á 44. mínútu. Hvorugu liði tókst að skora svo niðurstaðan varð markalaust jafntefli.
Liðin mættust í lokaleik riðlakeppni Lengjubikarsins og ljúka þau keppni í neðstu sætum riðils 3 í A-deild. KA með fjögur stig eftir fimm umferðir og Grindavík tvö stig.
Í B-deildinni átti Víkingur Ólafsvík heimaleik gegn Reyni Sandgerði og skoraði Ingólfur Sigurðsson eina mark leiksins á níundu mínútu.
Liðin mættust í toppbaráttu riðils 2 þar sem Ólafsvíkingar voru með fullt hús stiga en þeim tókst ekki að skora í dag. Liðin eru núna jöfn á stigum með níu stig eftir fjórar umferðir.
KA 0 - 0 Grindavík
Víkingur Ó. 0 - 1 Reynir S.
0-1 Ingólfur Sigurðsson ('9)
Athugasemdir

