Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 19:36
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Ísak spilaði fyrri hálfleikinn gegn Dortmund
Mynd: EPA
Köln 1 - 2 Borussia Dortmund
0-1 Serhou Guirassy ('16 )
0-2 Maximilian Beier ('60 )
1-2 Jakub Kaminski ('88 )
Rautt spjald: Jahmai Simpson-Pusey, Köln ('45+2)

Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði FC Köln og lék fyrri hálfleikinn í tapi gegn ógnarsterku liði Borussia Dortmund.

Serhou Guirassy skoraði eina markið í fyrri hálfleik eftir að varnarlína Kölnar missti einbeitingu í andartak. Köln átti góðan fyrri hálfleik og fékk færi til að jafna metin en tókst ekki að skora.

Í uppbótartíma fyrri hálfleiks fékk Jahmai Simpson-Pusey svo að líta beint rautt spjald fyrir hættulegt brot þar sem hann fór með takkana í hásinina á Maximilian Beier, sem tvöfaldaði forystu Dortmund á 60. mínútu eftir laglegt samspil við Julian Brandt.

Tíu leikmenn í heimaliði Köln bitu frá sér og náðu að minnka muninn undir lokin eftir laglegt einstaklingsframtak frá Jakub Kaminski, en skot hans breytti um stefnu af varnarmanni til að enda í netinu.

Nær komst Köln ekki og urðu lokatölur 1-2 fyrir Dortmund, sem er ellefu stigum á eftir toppliði FC Bayern þegar níu umferðir eru eftir af deildartímabilinu.

Ísak og félagar eru tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið, með 24 stig eftir 25 umferðir.
Athugasemdir
banner