Manuel Neuer aðalmarkvörður FC Bayern verður ekki með í næsta leik vegna smávægilegra vöðvameiðsla í kálfa.
Neuer meiddist í 4-1 sigri gegn Borussia Mönchengladbach í gær þar sem hann var tekinn af velli í hálfleik fyrir Jonas Urbig.
Óljóst er hversu lengi Neuer verður frá keppni en hann missir af útileiknum gegn Atalanta í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og gæti einnig verið fjarverandi þegar Bayern heimsækir Bayer Leverkusen í þýsku deildinni næstu helgi.
Læknateymi Bayern vonast til að hinn 39 ára gamli Neuer, sem verður fertugur í lok mars, verði klár í slaginn fyrir seinni leikinn gegn Atalanta sem verður á heimavelli 18. mars.
15.02.2026 11:40
Fyrirliðinn frá keppni næstu vikurnar
Athugasemdir


