Jóhannes Karl Guðjónsson og lærisveinar hans í FH gerðu 1-1 jafntefli við norska B-deildarliðið Moss í æfingaleik á Marbella á Spáni í dag.
Sænski miðvörðurinn Tobias Carlsson sem kom til FH frá Sirius á dögunum sá rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks, en samkvæmt FH-ingum þá var samþykkt að þeir myndu spila ellefu á móti ellefu í síðari hálfleiknum.
Kjartan Kári Halldórsson kom FH-ingum yfir með marki úr vítaspyrnu en Moss tókst að jafna metin undir lok leiks.
Byrjunarlið FH: Jökull Andrésson (M), Birkir Valur Jónsson, Tobias Carlsson, Grétar Snær Gunnarsson, Baldur Kári Helgason, Tómas Orri Róbertsson, Kári Kristjánsson, Gils Gíslason, Adolf Daði Birgisson, Kjartan Kári Halldórsson, Sverrir Páll Hjaltested.
Búið og 1-1 því lokatölur.
— Fimleikafélag Hafnarfjarðar (@fhingar) March 7, 2026
Athugasemdir

