Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. ágúst 2019 14:13
Magnús Már Einarsson
Tottenham með nýtt tilboð í Lo Celso
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur lagt fram nýtt tilboð í Giovani Lo Celso miðjumann Real Betis en tilboðið hljóðar upp á 55 milljónir punda.

Real Betis vill hins vegar fá 64 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Argentínumaðurinn hefur verið á óskalista Tottenham í allt sumar og félagið vill fá hann áður en félagaskiptaglugginn á Englandi lokar á morgun.

Tottenham er með alla anga úti að styrkja hópinn en eins og kom fram fyrr í dag þá hefur Philippe Coutinho hafnað því að koma á láni frá Barcelona.

Bruno Fernandes, miðjumaður Sporting Lisabon, er einnig á óskalistanum en Tottenham hefur verið að funda með honum og umboðsmanni hans. Sporting vill líka fá 64 milljónir punda fyrir Fernandes
Enska upphitunin - Gluggafjör og uppeldi hjá Tottenham
Athugasemdir
banner
banner
banner