Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
Viktor ósáttur á bekknum: Fór í hálfgert blackout
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
Axel Óskar: Við erum miklu stærra lið samt
Nauðsynlegur sigur fyrir framtíð Jökuls? - „Ég er raunverulega ekki að pæla í því“
„Hann er uppalinn strákur sem hefur lagt mikið á sig til þess að ná langt"
Jóhann Árni: Tilfinningar brutust út
Davíð Smári pirraður: Vorum einhvern veginn ekki tilbúnir í fightið
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Gunnar Heiðar spenntur: Þetta er nýi núllpunkturinn
Aron Baldvin: Vissum að við myndum fá bestu útgáfuna af þeim
Ólafur Ingi: Lokuðum búðinni eftir rauða spjaldið
„Af því enginn þekkir nafnið þá veljið þið hann ekki mann leiksins”
   þri 05. maí 2026 22:33
Snæbjört Pálsdóttir
Hildur María svekkt: „Þetta var bara stöngin út“
Kvenaboltinn
Hildur María Jónasdóttir, fyrirliði Fram, segir stíganda vera í leik liðsins.
Hildur María Jónasdóttir, fyrirliði Fram, segir stíganda vera í leik liðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram tapaði 3-0 gegn Þrótti á heimavelli í dag og var fyrirliðinn Hildur María Jónasdóttir eðlilega svekkt eftir leik.

„Auðvitað mikil vonbrigði, við ætluðum auðvitað að sækja okkar fyrstu stig. Það tókst ekki þannig að fyrstu tilfinningarnar bara mikil vonbrigði.“


Lestu um leikinn: Fram 0 -  3 Þróttur R.

„Mér fannst við spila vel en það kemur eitt klaufalegt mark þarna í fyrri hálfleik og svo komum við sterkari út í seinni hálfleik og erum svona með momentið með okkur. Það fellur bara ekki með okkur í dag, þetta var svolítið bara stöngin út.“

„Ég klúðra dauðafæri og svona, þannig þetta er bara stöngin út en það er bara næsti leikur.“

Framliðið kom af krafti inn í seinni hálfleik og segir Hildur skilaboðin hafa verið skýr í hálfleik.

„Bara ekki gefast upp og halda áfram. Við höfðum engu að tapa þegar við förum út í seinni hálfleik. Við eigum helling eftir að sanna okkur.“

„Það var komið með mikinn kraft út en það var svona högg þegar það gengur ekki upp og færð á þig annað mark.“

Að hennar mati einkennist liðið af sterkri trú og baráttu.

„Já ég myndi segja það, mér finnst í öllum þessum leikjum, þó við séum ekki búin að sækja stig, að þá er stígandi í þessu og ég er stolt af liðinu fyrir að halda alltaf áfram.“

„Við höfum alltaf trú og það er alltaf tími, það getur allt gerst.“

„Þetta tímabil er bara rétt að byrja og við munum halda áfram að berjast. Það er nóg af stigum eftir í pottinum og við munum bara halda áfram.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner