Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   mið 06. maí 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Erreà Futsal Cup hefst síðar í maí
Mynd: KSÍ
Mynd: KSÍ
Erreà Futsal Cup 2026 verður haldið í Digranesi í Kópavogi og er skráning hafin á mótið.

Margfaldir Íslandsmeistarar í Futsal í liði Ísbjarnarins halda mótið í samstarfi við Erreà.

Erreà mótið er ætlað öllum sem hafa áhuga á innanhúss fótbolta þar sem lið spila með fimm leikmenn gegn fimm. Mótið er bæði ætlað liðum með reynslu og þeim sem vilja stíga sín fyrstu skref í greininni.

„Við viljum skapa vettvang þar sem lið geta keppt í alvöru futsal umhverfi og jafnframt gefið nýjum leikmönnum tækifæri til að prófa sig áfram,“ segir Denis Grbic, framkvæmdastjóri Ísbjarnarins Futsal Club.

Riðlakeppnin fer fram 22.-24. maí og er leikið til úrslita helgina 29.-31. maí.

Liðaskipan
• Lágmark 8–10 leikmenn á lið
• Hámark 14 leikmenn

Verðlaun
• 10–12 futsalboltar
• 100.000 kr. gjafabréf frá Erreà Íslandi
• Farandbikar með nafni liðs

Leikfyrirkomulag
• Leikið verður eftir UEFA/FIFA futsal reglum.
• Riðlakeppni: 2 × 20 mínútur (rennandi tími)
• Úrslitakeppni: 2 × 20 mínútur (stöðvaður tími) – stoppað við allar leikstöðvanir.

Skráning
• Þátttökugjald er 40.000 kr. á lið.
• Takmörkuð sæti eru í boði og gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.
Slapp
banner
banner