Afturelding hefur hafið samstarf með Guðrúnu Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttur, betur þekkt sem tónlistarkonan GDRN.
Guðrún Ýr er Mosfellingur og lék fyrir meistaraflokk Aftureldingar áður en hún meiddist illa og lagði skóna á hilluna. Hún er ein af vinsælustu tónlistarkonum landsins og er merki hennar komið framan á æfingasett Aftureldingar.
GDRN verður framan á æfingasetti Aftureldingar næstu þrjú árin.
„Við erum óendanlega þakklát fyrir það að okkar stóra tónlistarfólk er tilbúið að vinna með okkur og þökkum GDRN kærlega fyrir stuðninginn og hlökkum til samstarfsins!" segir Sigurbjartur Sigurjónsson í Mosfellingi.
Stórhljómsveitin Kaleo, sem einnig er úr Mosfellsbæ, er með sitt merki framan á treyjum Aftureldingar. Hugmyndin um að ræða við Guðrúnu vaknaði útfrá samstarfinu við Kaleo.



