Grindavík kom sér á sigurbraut á ný í Lengjudeildinni í dag þegar liðið lagði topplið Gróttu 3-1 í rigningarleik í Grindavík. Fyrirliði liðsins Aron Jóhannsson gaf sér tíma í spjall við fréttaritara að leik loknum.
Lestu um leikinn: Grindavík 3 - 1 Grótta
„Það er ljúft að gera þetta svona vel eins og við gerðum þetta í dag.“ Sagði Aron um tilfinninguna eftir sigurinn sem fór með Grindavíkurliðið í 17 stig 4 stigum á eftir toppliði Fylkis.
Stöðugleiki hvað frammistöður varðar hefur ekki alltaf verið sterkasta hlið Grindavíkur á undanförnum árum en vel að merkja virðist liðið vera orðið stöðugra í sínum leik nú þó úrslitin hafi ekki alltaf verið að detta með þeim.
„Já og þá sértstaklega núna á þessu tímabili hefur verið örlítið jafnari frammistaða finnst mér. Síðustu 3 ár hefur verið erfitt fyrir okkur að tengja saman sigra og hefur verið það í ár líka en mér finnst frammistaða liðsins fara batnandi.“
Hvað með markmið liðsins? Er það bara að telja upp úr hattinum í lokin?
„Það eru bara allar klisjurnar í bókinni, einn leikur í einu og sjáum hverju það skilar okkur.“
Sagði Aron en allt viðtalið má sjá hér að ofan þar sem hann ræðir deildina og setur ofan í við fréttaritara sem var ekki með á hreinu að hann hefði varla misst úr leik síðan hann kom til Grindavíkur þó vissulega hafi hann verið meiddur í upphafi móts nú.
Athugasemdir























