Frimpong orðaður við Liverpool - City reynir við Reijnders - Man Utd ætlar ekki að losa sig við Amorim
   sun 09. október 2022 18:53
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Brais Mendez með sigurmarkið gegn Villarreal
Mendez er kominn með 5 mörk í 8 deildarleikjum og þá gerði hann sigurmarkið gegn Manchester United á Old Trafford.
Mendez er kominn með 5 mörk í 8 deildarleikjum og þá gerði hann sigurmarkið gegn Manchester United á Old Trafford.
Mynd: EPA
Mynd: EPA

Þremur fyrstu leikjum dagsins er lokið í spænska boltanum þar sem Real Sociedad lagði Villarreal að velli með góðum sigri.


Brais Mendez var keyptur til Real Sociedad í sumar og hefur farið gríðarlega vel af stað með félaginu. Hann skoraði eina mark leiksins í sigrinum í dag.

Heimamenn í liði Sociedad voru talsvert sterkari í fyrri hálfleik og óheppnir að leiða ekki stærra í leikhlé. Seinni hálfleikurinn var jafnari en Sociedad verðskuldaði sigurinn.

Sociedad er í sjötta sæti deildarinnar eftir sigurinn, með 16 stig eftir 8 umferðir. Villarreal er með 12 stig.

Real Sociedad 1 - 0 Villarreal
1-0 Brais Mendez ('33)

Real Valladolid og Real Betis gerðu þá markalaust jafntefli á meðan Cadiz og Espanyol skildu jöfn.

Joselu gerði bæði mörk Espanyol en Lucas Perez, fyrrum leikmaður Arsenal og West Ham, jafnaði fyrir Cadiz.

Betis hefur farið best af stað og er með 16 stig eftir 8 umferðir. Valladolid, Cadiz og Espanyol eru aðeins með fimm til átta stig.

Real Valladolid 0 - 0 Real Betis

Cadiz 2 - 2 Espanyol
1-0 V. Chust ('41)
1-1 Joselu ('51)
1-2 Joselu ('67)
2-2 L. Perez ('78)


Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 35 26 4 5 95 36 +59 82
2 Real Madrid 35 23 6 6 72 37 +35 75
3 Atletico Madrid 35 20 10 5 60 27 +33 70
4 Athletic 35 17 13 5 51 26 +25 64
5 Villarreal 35 17 10 8 61 47 +14 61
6 Betis 35 16 10 9 53 43 +10 58
7 Celta 36 15 7 14 56 54 +2 52
8 Vallecano 35 12 11 12 37 42 -5 47
9 Mallorca 35 13 8 14 33 40 -7 47
10 Osasuna 35 10 15 10 43 51 -8 45
11 Valencia 35 11 12 12 43 51 -8 45
12 Real Sociedad 36 12 7 17 32 42 -10 43
13 Sevilla 36 10 11 15 40 49 -9 41
14 Girona 36 11 8 17 42 53 -11 41
15 Getafe 35 10 9 16 31 34 -3 39
16 Espanyol 35 10 9 16 38 47 -9 39
17 Alaves 35 8 11 16 35 47 -12 35
18 Leganes 35 7 13 15 35 53 -18 34
19 Las Palmas 36 8 8 20 40 58 -18 32
20 Valladolid 36 4 4 28 26 86 -60 16
Athugasemdir
banner
banner