FH-ingar unnu sannfærandi 5-1 sigur á Njarðvík í Þungavigtarbikarnum í Skessunni í dag. Heimamenn lentu undir í leiknum og staðan var jöfn í hálfleik. Heimamenn áttu öflugan seinni hálfleik, skoruðu fjögur mörk.
Símon Logi Thasaphong kom Njarðvíkingum yfir í fyrri hálfleiknum en FH svaraði með fimm mörkum.
Kristján Flóki Finnbogason skoraði tvö og þeir Gils Gíslason, Benjamín Bæring og Bjarni Guðjón Brynjólfsson komust þá einnig á blað.
FH-ingar mæta Keflavík í lokaleik riðilsins næstu helgi en FH-ingar geta þar tryggt sæti sitt í úrslitum.
FH hefur unnið mótið tvisvar en spilað verður um sæti í mars næstkomandi.
Athugasemdir



