Fyrstu umferðinni í riðlakeppni EM U21 árs landsliða lauk í kvöld.
England vann Tékkland, 3-1, á MOL-leikvanginum í Dunajska Streda í Slóvakíu.
Liverpool-maðurinn Harvey Elliott skoraði með föstu skoti á 40. mínútu og bætti Jonathan Rowe við öðru á 48. mínútu eftir stórkostlegan undirbúning frá Tino Livramento.
Daniel Fila, liðsfélagi Mikaels Egils Ellertssonar og Bjarka Steins Bjarkasonar í Venezia, minnkaði muninn fyrir Tékka áður en Charlie Cresswell gerði út um leikinn með þriðja marki Englendinga á 76. mínútu.
Englendingar með 3 stig eins og Þjóðverjar sem unnu Slóveníu, 3-0. Nick Woltemade, sóknarmaður Stuttgart, gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu.
Woltemade er 23 ára gamall og skoraði 17 mörk í deild- og bikar með Stuttgart sem vann þýska bikarinn. Hann var valinn í lið ársins hjá Kicker og valinn nýliði ársins af deildinni. Mörg stór félög um allan heim eru að skoða Woltemade og mun frammistaða hans í kvöld væntanlega flýta fyrir mögulegum skiptum í stærra félag.
Bayern München, Brighton, Everton og Liverpool eru öll sögð áhugasöm um hann. Stuttgart verðmetur hann á 42 milljónir punda.
Þjóðverjar eru efstir í B-riðli og Englendingar í öðru.
Í D-riðli unnu Danir 3-2 baráttusigur á Úkraínu. Clement BIschoff, William Boving og William Osula skoruðu mörk danska liðsins.
Í hinum leik riðilsins björguðu Hollendingar andliti í 2-2 jafntefli gegn Finnlandi. Finnar komust í 2-0 í fyrri hálfleik, en Luciano Valente minnkaði muninn þegar hálftími var til leiksloka áður en hann lagði upp fyrir Ernest Poku seint í uppbótartíma.
Úrslit og markaskorarar:
Úkraína 2 - 3 Danmörk
1-0 Nazar Voloshyn ('22 )
1-1 Clement Bischoff ('62 )
2-1 Maksym Bragaru ('78 )
2-2 William Boving ('81 )
2-3 William Osula ('85 )
Tékkland 1 - 3 England
0-1 Harvey Elliott ('39 )
0-2 Jonathan Rowe ('48 )
1-2 Daniel Fila ('51 )
1-3 Charlie Cresswell ('76 )
Finnland 2 - 2 Holland
1-0 Casper Terho ('25 )
2-0 Topi Keskinen ('28 )
2-1 Luciano Valente ('59 )
2-2 Ernest Poku ('90 )
Þýskaland 3 - 0 Slóvenía
1-0 Nick Woltemade ('19 )
2-0 Nick Woltemade ('42 )
3-0 Nick Woltemade ('82, víti )
Athugasemdir