Vinstri bakvörðurinn Junior Firpo hefur samþykkt þriggja ára samning hjá spænska félaginu Real Betis, en þetta segir Fabrizio Romano í kvöld.
Firpo er 28 ára gamall og alger lykilmaður er Leeds vann B-deildina á tímabilinu.
Varnarmaðurinn kom til Leeds frá Barcelona árið 2021 og spilað tvö tímabil í úrvalsdeildinni áður en liðið féll niður um deild. Hann hjálpaði Leeds að komast aftur í deild þeirra bestu, en mun ekki taka slaginn áfram með liðinu.
Samningur Firpo rennur út um mánaðamótin og mun hann ekki framlengja, en hann hefur þegar skrifað undir þriggja ára samning við Real Betis.
Romano segir „Here we go! og því skiptin svo gott sem klár.
Firpo er uppalinn hjá Real Betis og spilaði tvö tímabil með aðalliðinu áður en hann var seldur til Barcelona. Hann er fæddur í Dóminíska lýðveldinu en flutti ungur að árum til Spánar og spilaði með yngri landsliðunum þar áður en hann ákvað að spila fyrir heimaland sitt.
Hann byrjaði að spila með landsliði Dómínska lýðveldisins á síðasta ári og hefur síðan spilað 11 leiki og skorað 4 mörk.
Athugasemdir