Gennaro Gattuso mun í vikunni funda með Gabriele Gravina, forseta ítalska fótboltasambandsins.
Gattuso er líklegastur til að taka við ítalska landsliðinu af Luciano Spalletti sem lét af störfum eftir 2-0 sigur gegn Moldóvu í undankeppno HM á mánudagskvöld.
Gattuso er líklegastur til að taka við ítalska landsliðinu af Luciano Spalletti sem lét af störfum eftir 2-0 sigur gegn Moldóvu í undankeppno HM á mánudagskvöld.
Claudio Ranieri hafnaði því að taka við liðinu og Gattuso er nú efstur á blaði.
Gattuso hefur þegar rætt við sinn fyrrum liðsfélaga, Gianluigi Buffon, sem er formaður landsliðsnefndar ítalska sambandsins. Ítalskir fjölmiðlar segja að fundurinn hafi verið vel heppnaður og Gattuso sé klár í að taka við liðinu.
Gattuso er án félags eftir að hann lét af störfum hjá Hajduk Split í Króatíu nýlega. Hann er fyrrum stjóri Marseille, Valencia, AC Milan og Napoli.
Á leikmannaferlinum lék hann 73 landsleiki á miðju Ítalíu og varð heimsmeistari 2006.
Athugasemdir