Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
AC Milan horfir til Arsenal
Mynd: EPA
AC Milan er að skoða möguleikann á því að fá Oleksandr Zinchenko í sínar raðir frá Arsenal. Það er Sky á Ítalíu sem fjallar um málið.

Zinchenko er 28 ára Úkraínumaður sem á eitt eftir af samningnum sem hann skrifaði undir þegar hann kom frá Manchester City árið 2022.

Hann hefur mest spilað sem vinstri bakvörður hjá Arsenal og City þar á undan en á miðsvæðinu með landsliðinu.

Sky segir að launakröfur Zinchenko gætu sett strik í reikninginn fyrir Milan.

Ítalska félagið er í leit að manni í stað Theo Hernandez en Atletico Madrid er að reyna fá franska bakvörðinn í sínar raðir.

Zinchenko féll aftar í goggunarröðina á Emirates eftir að Myles Lewis-Skelly stimplaði sig inn í liðið hjá Mikel Arteta.

Arsenal greiddi 32 milljónir punda fyrir Zinchenko á sínum tíma. Hann var á blaði hjá Dortmund og Atletico í janúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner