Liverpool er samkvæmt heimildum Sky Sports í viðræðum við Hollendinginn Giovanni Van Bronckhorst um að koma inn í þjálfarateymi Arne Slot.
Hann er fyrsti kostur á blaði til að taka við starfi John Heitinga sem yfirgaf ensku meistarana í sumar til að taka við sem stjóri Ajax.
Hann er fyrsti kostur á blaði til að taka við starfi John Heitinga sem yfirgaf ensku meistarana í sumar til að taka við sem stjóri Ajax.
Van Bronckhorst komst í úrslitaleik Evrópudeildarinnar og vann skoska bikarinn 2022 sem stjóri Rangers en var rekinn þaðan í nóvember sama ár. Hann gerði Feyenoord að hollenskum meisturum 2016-17 en það var hans fyrsta þjálfarastarf.
Hann var ráðinn stjóri Besiktas síðasta sumar, vann tyrkneska ofurbikarinn en var látinn fara nokkrum mánuðum síðar og Ole Gunnar Solskjær tók svo við því starfi.
Van Bronckhorst er fimmtugur og lék með Feyenoord, Rangers, Arsenal og Barcelona á sínum ferli. Hann vann úrvalsdeildina 2001-02 með Arsenal, Meistaradeildina 2006 með Barcelona og spænsku deildina í tvígang. Hann var hluti af hollenska liðinu sem endaði í 2. sæti á HM 2010.
Athugasemdir