Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Adam gæti farið frá Fram í glugganum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Örn Arnarson, leikmaður Fram, er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að hugsa sér til hreyfings í komandi félagaskiptaglugga.

Hann hefur einungis komið við sögu í þremur leikjum í upphafi móts, hafði vonast eftir meiri spiltíma og er að skoða í kringum sig.

Hann er varnarmaður, hefur spilað miðvörð í þriggja manna vörn, bakvörð eða vængbakvörð. Hann er samningsbundinn út tímabilið 2026 en getur fengið sig lausan.

Adam er 29 ára, uppalinn hjá Breiðabliki og fór ungur út í atvinnumennsku. Hann var á árumum 2013-2021 erlendis; var á mála hjá NEC Nijmegen, Nordsjælland, Álasund, Gornik Zabrze og Tromsö. Hann á að baki einn A-landsleik.

Adam kom í Fram fyrir tímabilið 2023, kom við sögu í 25 leikjum það tímablið og 24 á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner