Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 12. mars 2023 22:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arteta ánægður að fá Jesus aftur - „Verður að vinna sér inn sæti"
Mynd: Getty Images

Mikel Arteta er gríðarlega ánægður með að fá Gabriel Jesus aftur inn í lið Arsenal en þessi brasilíski framherji var í leikmannahópnum í dag sem sigraði Fulham.


„Jesus verður að vinna sér inn sæti í liðin eins og alltaf. Við höfum allskonar möguleika, hvað varðar tengingu leikmanna og hvað við ætlumst til af þeim. Það er frábært að vera með svoleiðis vandamál, trúðu mér," sagði Arteta.

Jesus kom inn á þegar stundarfjórðungur var til leiksloka en hann hefur ekkert spilað vegna meiðsla eftir HM.

„Það er mikil lyftistöng að fá hann inn. Hann sagði við mig fyrir nokkrum dögum að það vantaði eitthvað upp á. Í gær horfði ég á hann og hann sagði: Ég er klár. Hann virðist frjáls og tilbúinn. Að sjá hann þarna með bros á vör var mjög gaman. Ég var mjög ánægður fyrir hans hönd," sagði Arteta.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner