Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   fös 13. júní 2025 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Barcelona reynir aftur við Nico Williams
Mynd: EPA
Nico Williams, leikmaður Athletic Bilbao, er einn eftirsóttasti leikmaður Evrópu í dag.

Lið á borð við Arsenal og Bayern eru sögð vera á eftir honum.

Barcelona hafði mikinn áhuga á honum síðasta sumar en ekkert varð úr félagskiptum að lokum. Spænski miðillinn Sport greinir frá því að Deco, yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona, hafi fundað með umboðsmanni leikmannsins í dag.

Bilbao gerir sér vonir um að halda Nico Williams í sumar og ætlar að bjóða honum samning.
Athugasemdir
banner