banner
   fös 13. júní 2025 17:30
Elvar Geir Magnússon
Heldur upp á fertugsafmælið sem leikmaður Brighton
Mynd: EPA
Brighton hefur gert nýjan eins árs samning við James Milner sem mun því fagna fertugsafmæli sínu sem leikmaður félagsins.

Milner hefur verið hjá Brighton síðan hann gekk í raðir félagsins frá Liverpool 2023.

Milner verður 40 ára þann 4. janúar á næsta ári og þyrfti að spila áfram á tímabilinu þar á eftir til að geta átt möguleika á að slá met Teddy Sheringham sem elsti útleikmaður úrvalsdeildarinnar.

Sheringham spilaði fyrir West Ham í efstu deild þegar hann var 40 ára og 272 daga gamall.

Milner lék aðeins fjóra úrvalsdeildarleiki fyrir Brighton á síðasta tímabili en liðið hafnaði í áttunda sæti. Hann hóf sinn feril hjá Leeds og átti eftir að leika fyrir Newcastle, Aston Villa, Manchester City og Liverpool.

Hann lék 61 landsleik fyrir England og spilaði fyrir þjóð sína á HM 2010 og 2014.
Athugasemdir
banner