
Það er skýrt markmið hjá Íslandi að fara upp úr riðlinum á EM í sumar. Það hefur aðeins einu sinni gerst áður að Ísland komist upp úr riðlinum, en núna er kominn tími á að það gerist aftur.
Hópur Íslands fyrir EM var tilkynntur í dag og svaraði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, spurningum fjölmiðla á fundinum.
Hópur Íslands fyrir EM var tilkynntur í dag og svaraði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, spurningum fjölmiðla á fundinum.
Ísland hefur ekki unnið í tíu leikjum í röð en það þarf að breytast þegar á stóra sviðið er komið.
„Auðvitað þurfum við að vinna leik til að komast áfram. Markmiðið okkar er skýrt: Við ætlum upp úr þessum riðli. Það er grundvallarmarkmið fyrir þetta mót," sagði Þorsteinn.
„Ég tel okkar möguleika alveg ágæta en við þurfum að eiga gott mót til að ná þessu markmiði. Við erum samt alveg skýr með það að við ætlum okkur þetta, alveg sama hvernig í andskotanum við förum að því."
Það er minni reynsla í hópnum núna en fyrir síðasta stórmót en Steini telur samt sem áður að þessi hópur geti farið upp úr riðlinum og gert góða hluti á mótinu. Það hefur verið mikil umræða í samfélaginu eftir síðasta glugga um að liðið hafi ekki unnið í tíu leikjum í röð og var landsliðsþjálfarinn spurður út í það í viðtali við Fótbolta.net.
„Hún er bara eðlileg. Það er ekkert óeðlilegt að það sé fjallað um það að liðið vinni ekki leiki," sagði Þorsteinn.
„Ég hef sagt það allan tímann að við tókum ákvörðun að undirbúa okkur fyrir EM með því að fara til Bandaríkjanna og spila gegn stórri þjóð með fullt af fólki að horfa á. Ég vissi það alveg að þegar við vorum að velja leiki að það gæti brugðið til beggja vona. Síðan kemur þessi Þjóðadeild og við vorum jafntefliskóngarnir þar. Það voru ákveðnar frammistöður þar sem við vorum sátt við."
„Núna snýst þetta um að vinna Noreg og Sviss á EM. Það telur miklu meira fyrir okkur en að vinna þessi lið í Þjóðadeildinni."
Markmiðið er skýrt núna og það er að vinna leiki á EM, og komast upp úr riðlinum. Annað væri vonbrigði.
Leikir Íslands á EM:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir