Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
banner
   fim 16. janúar 2014 23:42
Elvar Geir Magnússon
Hallur átta árum eldri en þjálfarinn: Er kornungur sjálfur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst við kannski ívið sterkari í fyrri hálfleik, við vorum að djöflast og þræla þeim út. Svo var pústið búið hjá okkur og þeir gengu á lagið," sagði Hallur Hallsson, fyrirliði Þróttar, eftir 4-1 tap gegn Víkingi á Reykjavíkurmótinu í kvöld.

„Mér fannst bæði lið hlaupa, berjast og reyna að spila boltanum þegar það átti við. Heilt yfir fínn leikur, miklu betri en síðasti leikur allavega. Það var eitthvað bras á okkur þar eftir jóalfríið en það er búið," sagði Hallur en hann var þar að tala um 0-0 jafntefli gegn KV síðasta föstudag.

„Allir sem spiluðu leikinn og komu inn gáfu sig 100% í þetta. Við erum að prófa nýja hluti með nýjum þjálfara og eðlilegt að þetta rúlli ekki smurt strax í byrjun."

Englendingurinn Gregg Ryder tók við þjálfun Þróttar en hann er fæddur 1988 og er því átta árum yngri en Hallur. Hvernig finnst honum að hafa svona ungan þjálfara?

„Það er allt í góðu, ég er svo kornungur sjálfur," sagði Hallur kíminn. „Hann er með sínar áherslur og þetta er aðeins öðruvísi en þessir Íslendingar sem við höfum haft. Það mun taka okkur smá tíma að þróa okkar leik eins og hann vill hafa hann."

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner